Þróun hlutafjár
Hluthafaskrá sér um að skrá niður allar færslur sem verða á hlutafénu.
Þróun hlutafjár er raðað eftir dagsetningum færslanna og þá er nýjasta færslan efst.
Eyða færslum
Hægt er að eyða færslum í þróun hlutafjár og við það breytist hluthafaskráin. Færslu er eytt með því að smella á ruslafötuna hægra megin við skýringuna.
ATH! Einungis er hægt að eyða nýjustu færslunni hverju sinni. Þannig er ekki hægt að eyða eldri færslum nema eyða nýjustu fyrst og svo koll af kolli.
Aðgerðir sem eru ekki skráðar í þróun hlutafjár
Eftirfarandi aðgerðir eru ekki breytingar á hlutafé og vistast því ekki í þróun hlutafjár:
Arðgreiðslur
Hlutafjármiðar
Breytingar á notendum eða aðgangi bókara.
Skráning veflykils
Breytingar á áskriftum.