Algengar spurningar

 

 Hvar finn ég uppsetningarforritið fyrir KODIAK Pro?

Uppsetningarforrit fyrir KODIAK Pro er að finna á slóðinni www.kodiak.is

 Hvert fer KODIAK Pro forritið þegar búið er að keyra installið?

Eftir hverja nýja uppfærslu gerir KODIAK Pro nýja undirslóð eftir \2.0

Í uppfærslu 1.8 Er slóðin - C:\Users\[NAFN_NOTANDA]\AppData\Local\Apps\2.0\KZDRDBTJ.43Y\NDWTMKDJ.QQ5\kodi...exe_8e12b8a...

 Get ég einhvernvegin keyrt install fyrir RTD Extensions handvirkt?

 Installið er að finna á harða disknum þínum hér -  C:\Users\[USER-NAME]\AppData\Local\Apps\2.0\LMLP3BB2.M96\TDATDOJA.EPL\kodi...exe_8e12b8...\Extensions

 Ég smelli á install á síðunni ykkar en það opnast bara einhver xml skrá.

Það eru rangar stillingar á servernum okkar. Hins vegar er hægt að komast fram hjá þessu með því nota FireFox eða Chrome til þess að setja forritið upp. Við yrðum þakklát ef þú létir okkur vita í help@kodiak.is

 Ég logga mig inn og fæ There was an error authenticating.

Mögulega er vélin ekki stillt til þess að fara í gegnum proxy. Þá þarf að setja Proxy í IE til þess að route'a umferðina í gegnum proxy.

 KODIAK Pro hrynur við ræsingu.

Þessi vandi lýsir sér þannig að hægt er að skrá sig inn, KODIAK Pro virðist vera að kveikja sér en skyndilega hrynur. Þetta er vandi tengdur skjáborði (Workspace) og hægt er að leysa það með því að eyða workspace-inu eða færa það úr möppunni sinni.

Workspace-in eru geymd undir C:\Users\<nafn notanda>\AppData\Roaming\Kodiak\KodiakPro\Settings\Workspaces

KODIAK Pro býr síðan til nýtt default workspace þegar forritið er keyrt upp næst.

 Kodiak var að uppfærast og default skjáborðið birtist. Er hægt að fá gamla skjáborðið aftur?

Í útgáfu 1.5 þá breyttist staðsetningin fyrir workspace.  Hægt er að setja inn gamla skjáborðið.
Gamla staðsetning er hérna fyrir neðan: 

Windows XP:  C:\Documents and Settings\<user>\Application Data\Kodiak\MarketData\Settings\Workspaces\
Windows 7:  C:\Users\<user>\AppData\Roaming\Kodiak\MarketData\Settings\Workspaces\

Workspace-ið heitir default.xml nema nafninu hafi verið breytt.  

Til að setja inn gamla skjáborðið þá þarf að velja gamla skjáborðið í "Workspaces->Import":

 Bond Calculator er mjög hægur

KODIAK Pro getur verið mjög lengi að ná í proxy stillingar. Til þess að komast hjá þessum hægagangi þarf að fara í "Internet Options" (Options í Internet Explorer) og velja "LAN Settings".

Inni í LAN Settings glugganum er tekið hakið úr "Automatically detect settings".

Chrome 

Farðu í 'Settings' -> 'Show Advanced Settings' → 'Change proxy settings.'

Í LAN Settings > Afhakaðu 'Automatically detect settings' kassann.