Forgangsútboð

IPO kerfið býður uppá að halda utan um forgangsrétt í útboðum. Kerfið heldur einnig utan um framsal forgangsréttinda. Aðeins fjárfestar á forgangslista, sem hlaðinn er inn í kerfið þegar útboð er búið til, geta tekið þátt í slíkum útboðum auk þeirra sem framselt hefur verið til. Aðrir geta ekki tekið þátt í útboðinu.

Fjárfestar á lista yfir kaupréttarhafa geta skráð sig fyrir þeim fjölda hluta sem fram kemur á listanum. Þeir geta skráð sig fyrir fleiri hlutum (umfram kauprétt), en ef þeir kjósa að framselja réttinum, geta þeir einungis framselt þeim fjölda hluta sem kaupréttur segir til um.

Ef fjárfestir skráir sig fyrir fleiri hlutum en kaupréttur segir til um koma skilaboð þess efnis við skráningu.