Svara Áreiðanleikakönnun
Tilkynningarskyldum aðilum (t.d. endurskoðendur og lögmenn) ber skylda skv. lögum nr. 140/2018 að kanna áreiðanleika viðskiptamanna sinna. Þetta er gert með framkvæmd áreiðanleikakönnunar.
Sem viðskiptamaður hefur þú tvær leiðir til að svara áreiðanleikakönnun:
Tölvupóstur
Þú færð tölvupóst sendan frá tilkynningarskyldum aðila í gegnum noreply@hluthafaskra.is
Þú ýtir á hnappinn “Áreiðanleikakönnun” í póstinum, skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og ferð þá beint inn á áreiðanleikakönnunina.
Eftir að hafa svarað spurningum eftir bestu getu þarf að ýta á “Skila inn” og þá hefur þú lokið áreiðanleikakönnuninni.
Ef þú ert að svara áreiðanleikakönnun fyrir hönd lögaðila bætast við fleiri spurningar t.d. varðandi viðskipti við ósamvinnuþýð ríki og staðfestingu á raunverulegum eigendum og upplýsingum úr fyrirtækjaskrá.
Erlendur aðili:
Tilkynning sem er bæði á íslensku og ensku inniheldur hlekk inn á spurningalista sem er virkur í tvær vikur. Spurningalisti er í boði á íslensku og ensku. Skila þarf inn Afrit af persónuskilríkjum til að sanna á sér deili samhliða því að svara spurningalistanum.
Erlendir lögaðilar þurfa einnig að hlaða upp vottorði úr viðeigandi fyrirtækjaskrá í því landi sem lögaðilinn er skráður.
Innskráning með rafrænum skilríkjum á www.hluthafaskra.is
Þú getur farið beint á Hluthafaskra.is - eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum er ýtt á rauða hnappinn “Svara áreiðanleikakönnun” sem vísar þér beint á ósvaraðar kannanir.
Ef spurningar vakna eða ef þú vilt koma ábendingu á framfæri er hægt að hafa samband á help@hluthafaskra.is