Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 3 Next »

Hvíla á þér skyldur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?

KYC kerfið er hannað fyrir tilkynningaskylda aðila til að framkæma áreiðanleikakannanir á skilvirkan hátt og öðlast góða yfirsýn á viðskiptavinum í samræmi við gildandi lög.

Stofna viðskiptavini

Fyrsta skref er að stofna viðskiptavini en það er hægt að gera á tvenna vegu. Annars vegar að stofna hvern viðskiptavin með kennitölu (val: og skilalykli) undir Fyrirtækin mín. Hins vegar er hægt að flytja inn Excel skjal með öllum kennitölum viðskiptavina í einu (val: og skilalykli). Þá er hægt að velja umsjónaraðila fyrir hvern viðskiptavin en hægt er að velja á milli skráðra starfsmanna í kerfinu.

Framkvæmd áreiðanleikakannana

Á svæðinu KYC í aðalvalmynd má nú sjá þá viðskiptavini sem hafa verið stofnaðir. Til að framkvæma aðgerðir þarf að haka í hvert félag, eitt eða fleiri, eftir því sem á við. Því næst er áreiðanleikakönnun framkvæmd í þeirri röð sem lýst er á síðunni.

1. Sækja KYC skýrslu úr Hlutafélagaskrá með raunverulegum eigendum.

Fyrsta skref við framkvæmd áreiðanleikakönnunar á félagi er að sækja KYC skýrslu. Skýrslan inniheldur gildandi skráningu úr Hlutafélagaskrá + raunverulega eigendur, og er sótt beint til RSK. Hægt er að sækja skýrsluna fyrir eitt félag eða mörg í einu. Skýrslan birtist í töflu þegar hún hefur verið sótt, ásamt dagsetingu.

2. Skrá réttan tengilið félags og netfang.

Næsta skref er að skrá tengilið félags, en sá verður að hafa lagalega heimild til að koma fram fyrir hönd félagsins. Í vali á tengilið eru sjálfkrafa þeir í boði sem heimild hafa skv. sóttri KYC skýrslu. Netfang þarf einnig að skrá. Þegar tengiliður hefur verið skráður virkjast áreiðanleikakönnun í Hluthafaskrá, og er aðgengileg viðkomandi við innskráningu.

3. Senda út tilkynningu um könnun.

Þriðja skref er að [senda tilkynningu] á viðkomandi til að gera honum viðvart um að svara könnun. Framkvæma má þessa aðgerð endurtekið ef þörf krefur sem ítrekun eða áminning. Eina og sama könnunin bíður viðkomandi í kerfinu óháð hversu oft tilkynning er send. 

4. Skrá áhættumat með litakóða.

Áhættumat á viðskiptavinum er í boði sjálfvirkt út frá svörum úr áreiðanleikakönnun. Vakin er athygli á að sjálfvirkt áhættumat er einungis tillaga og því mikilvægt að fara vel yfir svarlista úr könnun. Til að virkja sjálfvirkt áhættumat þarf að haka í þau félög sem hafa svarað könnun og velja sjálfvirkt áhættumat. Alltaf er þó hægt að skrá áhættumat handvirkt. 

Yfirlit helstu aðgerða

🧐 Góð yfirsýn

Haldið utanum alla viðskiptavini á einum stað og sjálfvirk áminning þegar þörf er á nýrri könnun. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.

🧾 KYC skýrsla sótt

Skýrsla sótt úr Hlutafélagaskrá [til RSK] með gildandi skráningu og raunverulegum eigendum, fyrir hvert félag eða mörg í einu.

📝 Áreiðanleikakönnun send

Könnun er virkjuð og tilkynning send út á tengilið félags sem skráir sig inn með rafrænum persónuskilríkjum.

(warning) Áhættumat skráð

Áhættumat skráð sjálfvirkt eða handvirkt með litakóða og athugasemdum þegar öll gögn liggja fyrir.

Ef spurningar vakna eða ef þú vilt koma ábendingu á framfæri er hægt að hafa samband á help@hluthafaskra.is

  • No labels