Hvíla á þér skyldur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?
KYC kerfið er hannað fyrir tilkynningaskylda aðila til að framkæma áreiðanleikakannanir á skilvirkan hátt og öðlast góða yfirsýn á viðskiptavinum í samræmi við gildandi lög.
Stofna viðskiptavini
Fyrsta skref er að stofna viðskiptavini en það er hægt að gera á tvenna vegu. Annars vegar að stofna hvern viðskiptavin með kennitölu (val: og skilalykli) undir Fyrirtækin mín. Hins vegar er hægt að senda Excel skjal með öllum kennitölum viðskiptavina (val: og skilalykli) á help@hluthafaskra.is
Framkvæmd áreiðanleikakannana
Á svæðinu KYC í aðalvalmynd má nú sjá þá viðskiptavini sem hafa verið stofnaðir. Til að framkvæma aðgerðir þarf að haka í hvert fyrirtæki, eitt eða fleiri, áður en lengra er haldið. Því næst er áreiðanleikakönnun framkvæmd í þeirri röð sem lýst er á síðunni:
Sækja KYC skýrslu úr Hlutafélagaskrá með raunverulegum eigendum.
Skrá réttan tengilið félags og netfang.
Senda út könnun á tengilið félags. Sýnishorn.
Skrá áhættumat með litakóða fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Helstu aðgerðir:
🧐 Góð yfirsýn
Haldið utanum alla viðskiptavini á einum stað og sjálfvirk áminning þegar þörf er á nýrri könnun. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.
🧾 KYC skýrsla sótt
Skýrsla sótt úr Hlutafélagaskrá með raunverulegum eigendum, fyrir hvert félag eða mörg í einu.
📝 Spurningalisti sendur
Spurningalisti sendur út á tengilið félags sem skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Aðgerð framkvæmd fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Áhættumat skráð
Áhættumat skráð með litakóðun og athugasemdum þegar öll gögn liggja fyrir, fyrir hvert félag eða mörg í einu.