Hvíla á þér skyldur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?
KYC kerfið er hannað fyrir tilkynningaskylda aðila til að framkæma framkvæma áreiðanleikakannanir á skilvirkan hátt og öðlast góða yfirsýn á viðskiptavinum í samræmi við gildandi lög.
Áreiðanleikakönnun á lögaðilum
🧐 Góð yfirsýn
Haldið utanum alla viðskiptavini á einum stað og sjálfvirk áminning þegar þörf er á nýrri könnun. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.
🧾 KYC skýrsla sótt
Skýrsla sótt úr Hlutafélagaskrá [til RSK] með gildandi skráningu og raunverulegum eigendum, fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Aðilar sanni á sér deili
Tengiliður er skráður en sá þarf að hafa heimild til að koma fram f.h. lögaðila. Þá er valkvætt að senda beiðni á aðra prókúruhafa lögaðila sem skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Áreiðanleikakönnun send
Áreiðanleikakönnun er send út á skráðan tengilið. Tölvupóstur er sendur út í nafni tilkynningarskylds aðila með hlekk á könnun. Tengiliður skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og svarar spurningalista.
Sjálfvirk PEP uppfletting
Sjálfkrafa PEP uppfletting um stjórnmálaleg tengsl virkjast þegar svör við áreiðanleikakönnun eru móttekin. Uppfletting fer fram á tengilið og raunverulegum eigenda ef um lögaðila er að ræða.
Áhættumat skráð
Áhættumat er skráð handvirkt eða sjálfvirkt með litakóða ásamt athugasemdum þegar öll gögn liggja fyrir, fyrir hvern viðskiptavin eða marga í einu. Hægt er að hlaða upp allt að 5 skjölum við niðurstöður könnunar.
Stofna viðskiptavini
Fyrsta skref er að stofna viðskiptavini en það er hægt að gera á tvenna vegu. Annars vegar að stofna hvern viðskiptavin með kennitölu (val: og skilalykli) undir Fyrirtækin mín. Hins vegar er hægt að senda flytja inn Excel skjal með öllum kennitölum viðskiptavina í einu (val: og skilalykli) á help@hluthafaskra.is
. Þá er hægt að velja umsjónaraðila fyrir hvern viðskiptavin en hægt er að velja á milli skráðra starfsmanna í kerfinu.
Framkvæmd áreiðanleikakannana
Á svæðinu KYC í aðalvalmynd má nú sjá þá viðskiptavini sem hafa verið stofnaðir. Til að framkvæma aðgerðir þarf að haka í hvert fyrirtækifélag, eitt eða fleiri, áður en lengra er haldiðeftir því sem á við. Því næst er áreiðanleikakönnun framkvæmd í þeirri röð sem lýst er á síðunni: .
1. Sækja KYC skýrslu úr Hlutafélagaskrá með raunverulegum eigendum.
2. Skrá réttan tengilið félags og netfang.
3. Senda út tilkynningu um könnun.
Skrá áhættumat með litakóða fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Helstu aðgerðir:
🧐 Góð yfirsýn
Haldið utanum alla viðskiptavini á einum stað og sjálfvirk áminning þegar þörf er á nýrri könnun. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.
🧾 KYC skýrsla sótt
Skýrsla sótt úr Hlutafélagaskrá [til RSK] með gildandi skráningu og raunverulegum eigendum, fyrir hvert félag eða mörg í einu.
📝 Spurningalisti sendur
Spurningalisti sendur út á tengilið félags sem skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Aðgerð framkvæmd fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Áhættumat skráð
Áhættumat skráð með litakóðun og athugasemdum þegar öll gögn liggja fyrir, fyrir hvert félag eða mörg í einu.4. Skrá áhættumat með litakóða.
Áreiðanleikakönnun á einstaklingum
Framkvæmd áreiðanleikakönnunar á einstaklingum fer fram með svipuðu móti og á lögaðilum en í færri skrefum.
1. Stofna viðskiptavini
2. Senda út tilkynningu um könnun.
3. Skrá áhættumat með litakóða
Ef spurningar vakna eða ef þú vilt koma ábendingu á framfæri er hægt að hafa samband á help@hluthafaskra.is