Aðgangsstýring
Aðgangsstýringar í kerfinu byggjast á hlutverkum (e. roles) og aðgerðum (e. features). Hverju hlutverki er gefinn aðgangur að ákveðnum aðgerðum. Hlutverk er svo bundið við Active Directory Group hjá viðkomandi viðskiptavin.
Hlutverk
Hlutverk eru notuð til þess að grúppa saman aðgerðum sem viðkomandi hlutverk á að hafa aðgang að. Hægt er að búa til eins mörg hlutverk í kerfinu og hverjum viðskiptavin hentar en til hægðarauka kemur kerfið upp sett með fjórum hlutverkum:
Hlutverk | Skýring | AD Group name |
---|---|---|
Admin | Admin hefur aðgang að öllum aðgerðum í kerfinu | KODIAKMiFID2Admin |
Compliance | Compliance hefur aðgang leit viðskiptavina og flokkun þeirra | KODIAKMiFID2Compliance |
FrontOffice | FontOffice hefur aðgang að því að svara spurningum fyrir viðskiptavini | KODIAKMiFID2FrontOffice |
BackOffice | BackOffice hefur aðgang að því að svara spurningum fyrir viðskiptavini | KODIAKMiFID2BackOffice |
Búið er að forskrá þær aðgerðir sem hvert hlutverk hefur aðgang að en einfalt er að breyta þeirri skráningu eins og viðskiptavini hentar. Einnig eru AD hópar forskráðir í kerfið en þeim er hægt að breyta að vild.
Lýsing á umsjón hlutverka má finna hér
Aðgerðir
Allar aðgerðir kerfisins eru forskráðar inn í kerfið. Hægt er að gefa hvaða hlutverki sem er aðgang að hvaða aðgerð sem er og klæðskerasníða þannig aðgangsstýringuna að þörfum viðskiptavinar
Í töflunni hér að neðan er tæmandi listi yfir aðgerðir kerfisins. Í töflunni er einnig útlistað hvaða hlutverk hefur, við uppsetningu, aðgang að viðkomandi aðgerð. Admin hefur aðgang að öllum aðgerðum og er því ekki tekið sérstaklega fram
Aðgerð | Lýsing |
---|---|
Skoða viðskiptavin | hægt að leita að viðskiptavinum og skoða grunnupplýsingar um viðskiptavini sem þegar eru í kerfinu. |
Breyta viðskiptavin | hægt að stofna nýja viðskiptavini í kerfið og breyta þeim sem fyrir eru í kerfinu. |
Skoða niðurstöður spurningalista | hægt að skoða niðurstöður spurningalista fyrir viðskiptavini kerfisins. |
Svara spurningalistum | hægt að svara spurningalistum fyrir hönd viðskiptavina kerfisins. |
Undanþágur | hægt að skoða og bæta undanþágum við notendur, ásamt því að skilgreina undanþágur. |
Umsjón spurningalista | hægt að breyta spurningalistum í kerfinu. |
Aðgangsstýring | hægt að breyta aðgangsstýringu fyrir notendur kerfisins. |
Fjárfestingastefnur | hægt að breyta fjárfestingastefnum í kerfinu. |
Verðbréfaflokkar | hægt að breyta verðbréfaflokkum í kerfinu. |
Samþykkja samninga | hægt að samþykkja samninga fyrir viðskiptavini. |
Skoða samninga | hægt að skoða samninga viðskiptavina |
Umsjón samninga | hægt að stofna og breyta samningum í kerfinu. |
Skýrslur | hægt að skoða skýrslur í kerfinu. |