Hluthafafundir og rafrænar kosningar

Hluthafafundir og rafrænar kosningar

🔹 1. Yfirlit

Hluthafafundir eru nýjasta viðbótin í kerfinu okkar og gerir fyritækjum og þjónustufyrirtækjum kleift að halda formlega hluthafafundi, senda fundarboð og framkvæma rafrænar kosningar á öruggan og gagnsæjan hátt.


🔹 2. Að stofna hluthafafund

2.1 Velja fyrirtæki

  • Þjónustufyrirtækið skráir sig inn.

  • Farðu í „Fyrirtækin mín“ og veldu fyrirtækið sem á að halda fund fyrir.

    image-20251126-100350.png

2.2 Opna hluthafafundi

Í yfirlitsglugganum smellir þú á „Hluthafafundir“.

  • Þar getur þú skoðað fyrri fundi

  • …eða valið „Stofna fund“

    image-20251126-100710.png

2.3 Grunnupplýsingar fundar

Við stofnun fundar skráir þú:

  • Titil fundar

  • Fundarlýsingu

Þessar upplýsingar birtast síðar í fundaryfirliti fyrir hluthafa.

2.4 Fylgiskjöl

Á næstu síðu er hægt að:

  • Hlaða upp fylgiskjölum sem tengjast fundinum

  • Breyta heiti skjala eftir á, ef þörf krefur

2.5 Þátttakendur

Þátttakendur fundarins eru sjálfkrafa þeir hluthafar sem eru skráðir á hluthafalistanum.


🔹 3. Drög og áframhald

Hægt er að smella á „Vista drög“ hvenær sem er og halda áfram síðar.

  • Drög eru aðgengileg undir „Hluthafafundir“

  • Þar þarf einnig að stilla dagsetningu fundar

  • Og láta fylgiskjöl fylgja með, ef óskað er

image-20251126-100931.png

🔹 4. Senda fundarboð til hluthafa

image-20251126-104300.png

4.1 Hvernig boð eru send

Kerfið sendir tölvupóst til allra hluthafa sem eru með virkt netfang í hluthafaskrá.

Athugið

Ekki er hægt að senda fundarboð fyrir fund sem er þegar hafinn.

4.2 Uppfærsla á netföngum

Hægt er að uppfæra upplýsingar á síðunni Hluthafar (opnast í nýjum glugga).

4.3 Móttaka boða hjá hluthafa

Hluthafi:

  1. Fær tölvupóst með fundarboði

  2. Skráir sig inn með rafrænum skilríkjum

  3. Staðfestir mætingu á fundinn

    image-20251126-101047.png

4.4 Umboð

Ef hluthafi kemst ekki, getur hann veitt umboð til annars aðila sem kýs fyrir hans hönd.

image-20251126-101235.png

🔹 5. Rafrænar kosningar

image-20251126-104528.png

5.1 Stofna kosningu

Til að stofna rafræna kosningu skráir þú:

  • Titil kosningar

  • Kosningarlýsingu

5.2 Bæta við spurningum

Á næstu síðu bætir þú við spurningum sem verða lagðar fyrir hluthafa.

image-20251126-104844.png

Kerfið styður eftirfarandi tegundir spurninga:

Tegundir spurninga

  • Einn leyfilegur valmöguleiki (radio buttons)

  • Margir leyfilegir valmöguleikar (check boxes)

  • Opin spurning (hluthafar geta merkt við hvaða valmöguleika sem er)

5.3 Breyta og bæta

  • Hægt er að bæta við bæði spurningum og svarmöguleikum

  • Hægt er að vista drög eða eyða drögum hvenær sem er

  • Áður en kosning er vistuð þarf að yfirfara allar spurningar


🔹 6. Stjórnborð kosningar

image-20251127-102635.png

6.1 Aðgangur fundarstjóra

Fundarstjóri stjórnar kosningu með því að velja „Stjórnborð kosningar“. Þar getur hann:

  • Hafið kosningu

  • Skoðað svarblað

  • Skoðað þátttöku

  • Opnað spurningar

image-20251127-103500.png

6.2 Hefja kosningu

Til að hefja kosningu:

  1. Fundarstjóri smellir á „Hefja kosningu“

  2. Hluthafar geta ekki kosið fyrr en kosning hefur verið opnuð

  3. Að því loknu opnar fundarstjóri fyrstu spurningu

  4. Hluthafar geta kosið þegar spurningin hefur verið virkjuð

6.3 Skoða svarblað

Fundarstjóri getur:

  • Skoðað sitt eigið svarblað

  • Tekið þátt í kosningunni sjálfur, ef við á


🔹 7. Skoða þátttakendur

image-20251127-103419.png

Hér getur fundarstjóri séð ítarlegar upplýsingar um hvern hluthafa, m.a.:

  • Netfang

  • Hvort tölvupóstur hafi verið sendur

  • Fjöldi atkvæða

  • Staðfestingu á mætingu

  • Hvort og hvenær hluthafi tengdist fundinum

  • Hvort hann hafi greitt atkvæði

  • Hvort hann hafi veitt umboð

  • Hægt er að breyta umboðsmanni, eftir þörfum


🔹8. Opna spurningar í kosningu

Fundarstjóri stjórnar framvindu kosningar með því að opna og loka hverri spurningu fyrir sig.
Mikilvægt er að einungis ein spurning getur verið opin í einu, þannig að kosningin fer alltaf fram í skrefum.

8.1 Opna spurningu

image-20251127-113650.png

 

Fundarstjóri getur:

  • Opnað spurningu þegar kosning hefur verið hafin

  • Breytt spurningu áður en hún er opnuð (t.d. lagfært texta eða valmöguleika)

  • Stjórnað því hvenær hluthafar geta greitt atkvæði

Athugið:
🤚 Ekki er hægt að leyfa hluthöfum að kjósa um fleiri en eina spurningu á sama tíma.
Þess vegna þarf fundarstjóri að ljúka spurningu áður en sú næsta er opnuð.

8.2 Skoða niðurstöður á meðan kosning stendur yfir

Fundarstjóri getur opnað niðurstöður í sér glugga, þar sem m.a. sést:

  • % af öllum atkvæðum

  • % af greiddum atkvæðum

  • „Kosið af mættum atkvæðum (%)“

Þetta gefur skýra mynd af þátttöku og framvindu kosningar á hverjum tímapunkti.

8.3 Bæta við spurningu á meðan fundur fer fram

Kerfið gerir fundarstjóra kleift að bregðast við breytingum á fundi:

  • Hægt er að bæta við nýrri spurningu hvenær sem er, t.d. ef óvænt tillaga er borin fram á hluthafafundi.

  • Sú spurning bætist strax við spurningalista kosningar og er unnin eins og aðrar spurningar.


🔹 9. Ljúka kosningu

Þegar búið er að kjósa og loka öllum spurningum getur fundarstjóri valið að ljúka kosningu.
Eftir að kosningu hefur verið lokið:

  • Er ekki lengur hægt að opna spurningar aftur

  • Er ekki hægt að taka við nýjum atkvæðum

  • ✔️ Niðurstöður eru frystar og hægt að vinna úr þeim

Lokun kosningar tryggir að niðurstöður eru endanlegar og að engar breytingar séu gerðar eftir að kosningu lýkur.