Heimildir í uppflettingum
PEP listi - Stjórnmálaleg tengsl
Keldan heldur úti íslenskum PEP lista sem er aðgengilegur tilkynningarskyldum aðilum. Á listanum eru einstaklingar sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu ásamt nánustu fjölskyldu og samstarfsmönnum á síðustu 18 mánuðum. Sjá skilmála.
Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. Peningaþvættislaga ber tilkynningaskyldum aðilum að kanna hvort viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi lögaðila sé í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Sjálfvirk uppfletting kerfisins verður þ.a.l. á viðskiptamanni eða þeim sem kemur fram f.h. lögaðila, prókúruhöfum og raunverulegum eiganda/eigendum.
Alþjóðlegir válistar
Tilkynningarskyldir aðilar geta flett upp einstaklingum á móti alþjóðlegum þvingunarlistum, PEP og neikvæðri umfjöllun (e. adverse media). Leitað er eftir nafni, fæðingardegi og þjóðerni.
Sbr. lög nr. 140/2018 um peningaþvætti og lög nr. 68/2023 um frystingu fjármuna og um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, ber tilkynningarskyldum aðilum að kanna hvort viðskiptavinir séu á slíkum alþjóðlegum válistum.
Listarnir sem kerfið keyrir á móti uppfylla kröfur AML5, FATF, UNCAC, JMLSG, UK/FCA og Wolfsberg Group um peningaþvætti og sækir upplýsingar m.a. í
United Nations Sanctions (UN)
US Consolidated Sanctions
OFAC – Specially Designated Nationals (SDN)
EU Financial Sanctions
UK Financial Sanctions (HMT)
Australian Sanctions
Switzerland Sanction List – SECO
INTERPOL Wanted List
Consolidated Canadian Autonomous Sanctions List
Office of the Superintendent of Financial Institutions (Canada)
Bureau of Industry and Security (US)
Department of State, AECA Debarred List (US)
Department of State, Nonproliferation Sanctions (US)
Áhættusöm / ósamvinnuþýð ríki
Tilkynningarskyldum aðilum sem eiga í viðskiptum við aðila sem tengjast áhættusömum og ósamvinnuþýðum ríkjum, er skilt að framkvæma aukna áreiðanleikakönnun á þeim í samræmi við 13. og 14. gr. laga nr. 140/2018.
Keldan heldur utanum gagnagrunn um áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki í samræmi við 6. gr. laga nr. 140/2018.
Kerfið heldur þá utanum búsetu og ríkisföng viðskiptamanna, og hægt er að taka út slíka skýrslu með með athugun á móti áhættusömum og ósamvinnuþýðum ríkjum. Frá ágúst 2025 mun kerfið flagga slíkum tilvikum sjálfkrafa, og munu þau vera hluti af sjálfvirku áhættumati.
Ef spurningar vakna eða ef þú vilt koma ábendingu á framfæri er hægt að hafa samband á help@hluthafaskra.is